Innlent

Geir staðfestir lán Pólverja

Geir H. Haarde og Björgvin G. Sigurðsson á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum.
Geir H. Haarde og Björgvin G. Sigurðsson á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum. MYND/Anton

Geir H. Haarde forsætisráðherra staðfesti á blaðamannafundi fyrir stundu að Pólverjar hefðu boðist til að lána Íslendingum 200 milljónir dollara vegna þeirra efnahagsþrenginga sem Íslendingar ganga í gegnum.

Hann sagði fjármálaráðherra Póllands hafa tjáð Árna Mathiesen fjármálaráðherra þetta í dag en Geir hafði ekki upplýsingar um það þegar hann var inntur eftir þessum tíðindum fyrir hádegi. Geir sagði frumkvæðið hafa komið frá Pólverjum og að ríkisstjórnin kynni þeim mestu þakkir fyrir þeirra vinahug. Þeir yrðu í samstarfi við ríkisstjórn Svíþjóðar sem hefði forystu um lán til Íslendinga frá hinum norrænu ríkjunum.

Geir sagði enn fremur að forystumenn ríkisstjórninnar hefði átt samræður við stjórnarandstöðuflokkana undir forystu forseta Alþingis um það með hvaða hætti staðið yrði að heildarrannsókn á hruni bankanna. Málinu yrði komið í farveg áður en lagt um liði, annaðhvort með þingályktunartillögu eða lagafrumvarpi.

Baðst afsökunar á litlum upplýsingum

Geir sagði stjórnvöld nú leita leiða til þess að auka upplýsingagjöf til almennings en fundið hefði verið að henni. Verkefnið nú væri risavaxið og það kynni að vera að upplýsingaflæði hefði ekki verið nógu gott og baðst hann velvirðingar á því. Sagði hann einnig að ekki væri hægt að greina frá öllu sem í gangi væri en verið væri að vinna að mjög mörgu og frá því yrði skýrt þegar það væri hægt. Það ætti meðal annars við samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Geir sagði skiljanlegt að það væri mikil reiði og ólga í samfélaginu. Þjóðin hefði sýnt mikið æðruleysi og það væri bjartsýni og samstaða á þessum ótrúlega erfiðu tímum. Þótt árið 2009 yrði erfitt myndi ástandið strax skána árið eftir.

Þá sagði hann að stjórnvöld myndu ekki líða að lögbrot í bankakerfinu yrðu órannsökuð. Hét hann því að jafnt myndi yfir alla ganga. Mjög mikilvægt væri að allir héldu ró sinni og benti forsætisráðherra á að bankakerfið virkaði vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×