Hvaðan komu auður og völd Vatnsfirðinga til forna? 10. júlí 2008 18:54
Alþjóðlegur hópur fornleifafræðinga rannsakar hvers vegna Vatnsfjörður í Ísafjarðardjúpi varð eitt ríkasta og valdamesta höfðingjasetur landsins á miðöldum. Samhliða er þar rekinn fornleifaháskóli fyrir nemendur víðs vegar að úr heiminum.Fornleifauppgröfturinn á þessu fornfræga höfuðbóli er sá umfangsmesti sem fram fer hérlendis um þessar mundir en þarna hefur verið grafið í fornar minjar undanfarinn fimm ár, og meðal annars fundist leifar víkingaskála. Ellefu erlendir nemendur í fornleifafræði fá þarna tækifæri til að læra vinnubrögðin í faginu í umsjá alþjóðlegs hóps fræðimanna. Vatnsfjörður þykir spennandi staður en verkefni fornleifafræðinganna er að komast að því hvað það var í umhverfinu og landslaginu sem gerði höfðingja staðarins svo ríka og volduga.Séra Baldur Vilhelmsson, sem býr í Vatnsfirði, fylgist með uppgreftrinum og hann skýrir uppsprettu auðs og valds Vatnsfirðinga til forna með því að á Sturlungaöld hafi Snorri Sturluson sett Órækju son sinn yfir staðinn. Vatnsfjörður hafi verið hernaðarlega mikilvægur. Einnig hafi hlunnindajarðir á Ströndum og víðar verið settar undir Vatnsfjörð.Skoskur piltur er í fornum öskuhaug að grafast fyrir um það hvenær Vatnsfirðingar fóru að nota mó sem brenni í staðinn fyrir viðarkol. Þarna verða yfir tuttugu manns nú í júlímánuði á vegum Fornleifaskólans, en að honum standa Fornleifastofnun Íslands og nokkrir háskólar og stofnanir austan hafs og vestan.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira