Innlent

Lögreglan rannsakar andlát við Skúlagötuna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort áverkar á höfði manns, sem fannst látinn í íbúð sinni við Skúlagötu í Reykjavík um kvöldmatarleitið í gær, kunni að vera af manna völdum.

Maður sem kom þá að hinum látna og lét lögreglu vita, var vistaður í fangageymslum í nótt, þar sem hann var í annarlegu ástandi og ekki hæfur til skýrslutöku.

Hann liggur þó ekki undir grun um að hafa valdið hinum látna áverka, og enn sem komið er, mun engin sérstakur liggja undir grun. Þá er enn óljóst hvort áverkarnir eru dánarorsökin. Hinn látni var á sjötugs aldri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×