Innlent

Olíuleki í Sundahöfn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
MYND/Egill

Töluverð olía lak úr flutningaskipinu Medemborg þegar mistök urðu við að dæla olíu á skipið rétt fyrir hádegi. Skipið liggur í Sundahöfn og fór olían í sjóinn.

Fimmtán manna hópur frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er á staðnum og að sögn Jóhanns Ásgeirssonar innivarðstjóra bíður þeirra margra klukkustunda vinna við að hefta útbreiðslu olíunnar í sjónum. „Við erum ásamt höfnunum með flotgirðingu sem við drögum út fyrir olíulekann og komum þar með í veg fyrir frekari útbreiðslu. Þá er náttúrulega eftir að ná olíunni upp úr sjónum og koma henni í þar til gerð ker til förgunar. Olíunni er dælt upp úr sjónum með dælubílum en hún flýtur ofan á. Svona lagað er margra klukkutíma vinna," útskýrir Jóhann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×