Innlent

Ákærðir fyrir að berja tvo við íþróttahús

Frá Þorlákshöfn.
Frá Þorlákshöfn. MYND/Einar Elíasson

Fjórir menn á aldrinum 20-24 ára hafa verið ákærðir fyrir tvær líkamsárásir við Íþróttahúsið í Þorlákshöfn í febrúar í fyrra en þeir réðust gegn fórnarlömbum sínum með höggum og spörkum. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í gær.

Þremur mannanna er gefið að sök að hafa ráðist í sameiningu að 28 ára gömlum manni, slegið hann í andlitið þannig að hann féll og síðan sparkað í hann, meðal annars í andlit þannig að hann nefbrotnaði, fékk glóðarauga og sprungnar æðar í auga.

Hið árásin átti sér stað skömmu síðar en þar stukku fjórmenningarnir á 32 ára gamlan mann og bæði börðu og spörkuðu í hann, einnig í andlitið. Sá hlaut kúlu á enni og ýmsa aðra áverka á höfði og líkama. Þrír mannanna neita sök í málinu en einn hefur ekki tekið afstöðu til ákærunnar. Síðarnefnda fórnarlambið hefur farið fram á 730 þúsund í bætur frá mönnunum vegna árásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×