Innlent

Tuttugu þúsund króna sekt fyrir nagladekk í umferð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn í gær sem allir voru á bílum á nagladekkjum en það er með öllu óheimilt á þessum árstíma.

Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk. Lætur því nærri að greiða þurfi 20 þúsund krónur fyrir hvern fólksbíl sem ekið er um á nagladekkjum. Trassaskapurinn kemur því verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Það sem af er vikunni hafa á þriðja tug ökumanna verið stöðvaðir í umdæminu fyrir þessar sakir.

Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×