Innlent

Leit stendur yfir að rjúpnaskyttu á Beilárheiði

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Akranesi, Borgarnesi, Varmalandi og Reykholti hafa verið kallaðar út til leitar að rjúpnaskyttu sem saknað er á Beilárheiði við Langavatn á Mýrum.

Maðurinn var við veiðar ásamt félaga sínum en skilaði sér ekki í bíl þeirra á tilsettum tíma seinnipartinn í dag. Hann var þó í talstöðvarsambandi fyrst um sinn og af og til í kvöld hefur náðst samband við manninn og er hann óslasaður en villtur.

Þetta er þriðja útkall björgunarsveita vegna rjúpnaskytta þessa fyrstu helgi rjúpnaveiðitímabilsins en í gær sóttu björgunarsveitir dreng sem var á veiðum með föður sínum og féll í klettum og mann sem brotnaði illa þegar hann féll í hlíð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×