Gunnar segir Lúðvík fara rangt með mál 19. ágúst 2008 17:50 Gunnar I. Birgisson er bæjarstjóri í Kópavogi.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir ekki rétt frá mannaráðningum í Kópavogi, að mati starfsbróður hans í Kópavogi, Gunnars I. Birgissonar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Fyrr í dag sagði Lúðvík í samtali við Vísi að Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, blanda tvennu ólíku saman í grein sem skrifaði í Fréttablaðið og fjallar um mannaráðningar í Kópavogi og Hafnarfirði. Lúðvík sagði að í tilfellum Hafnarfjarðarbæjar hafi ekki verið að færa fólk til í algjörlega ný störf, eins og gert var í Kópavogsbæ. „Í Kópavogi voru skilgreindar nýjar stöður sem fólki var skákað til í. Í okkar tilfellum var einfaldlega verið að breyta starfsheitum og þróa störfin." Tilkynningin í heild sinni: Vegna ábendingar bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um að ráðið hafi verið í stöður hjá Hafnarfjarðarbæ án auglýsingar líkt og í Kópavogi, hefur vefmiðillinn Vísir eftir bæjarstjóranum í Hafnarfirði að sá munur sé á, að í Kópavogi hafi verið „skilgreindar nýjar stöður sem fólki var skákað til í". Af þessu tilefni er nauðsynlegt að árétta eftirfarandi: Guðrún Pálsdóttir, fjármálastjóri Kópavogsbæjar, flyst í stöðu sviðsstjóra menningar- og tómstundasviðs hinn 1. september næstkomandi þegar Björn Þorsteinsson, núverandi sviðsstjóri, lýkur störfum til að rita sögu bæjarfélagsins frá 1980-2010. Anna Birna Snæbjörnsdóttir, starfsmannastjóri Kópavogsbæjar, flyst í stöðu framkvæmdastjóra fræðslusviðs þegar sú staða losnar og Þorsteinn Einarsson snýr aftur úr námsleyfi til að gegna stöðu starfsmannastjóra. Í hvorugu tilvikinu er um nýja stöðu að ræða. Fyrrverandi framkvæmdastjóri fræðslusviðs, Árni Þór Hilmarsson, flyst í nýja stöðu gæðastjóra Kópavogsbæjar samkvæmt starfsskipulagsbreytingum og markmiðum um vandaða stjórnsýslu sem bæjarfélagið hefur sett sér. Af framansögðu má ljóst vera að einungis hefur verið skilgreind ein ný staða hjá Kópavogsbæ, staða gæðastjóra. Eitt starf losnar, starf fjármálastjóra, og það hefur verið auglýst laus til umsóknar. Framangreindur tilflutningur í starfi er í öllum tilvikum í samræmi við lög og starfsmannastefnu bæjarins. Kópavogi, 19. ágúst 2008 Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi
Tengdar fréttir Lúðvík Geirsson: Erum ekki að skáka starfsfólki til Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir engan grundvöll fyrir gagnrýni Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem ritar um „sjálfsgagnrýni Samfylkingar“ í Fréttablaðið í dag. 19. ágúst 2008 14:19 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira
Lúðvík Geirsson: Erum ekki að skáka starfsfólki til Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir engan grundvöll fyrir gagnrýni Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem ritar um „sjálfsgagnrýni Samfylkingar“ í Fréttablaðið í dag. 19. ágúst 2008 14:19