Rústast íslenskur landbúnaður með nýjum lögum frá ESB? 17. apríl 2008 11:06 MYND/Valgarður
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, lýsti yfir áhyggjum af því að íslenskur landbúnaður myndir rústast ef nýtt frumvarp landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sem meðal annars kveður á um innflutning á hráu kjöti, yrði að veruleika.Í fyrirspurnartíma á Alþingi benti Guðni á að þegar vegferð frumvarpsins, sem snýst um viðauka við bókun EES-samningsins, hefði hafist fyrir allnokkru, hafi menn ekki talið að þetta myndi snerta íslenskan landbúnað mikið. Nú fullyrtu bæði mjólkur- og kjötframleiðendur að breytingin myndi dauðrota íslenska kjötframleiðslu. Um 25 þúsund tonn væru framleidd hér á landi og um 800 flutt inn en menn teldu að meðal afleiðinga frumvarpsins væri að kjötinnflutningur myndi aukast um sex til sjö þúsudn tonna. Þetta varðaði störf þúsunda manna hér á landi.Þá teldu menn fæðuöryggi hér á landi ógnað og hættu á sýkingum í íslenskum búfjárstofnum. Þessi óvissa væri ekki viðunandi og því vildi hann mælast til þess að áhættumat færi fram á öryggi matvælanna sem flutt yrðu inn og hvort dýraöryggi yrði ógnað. Jafnframt að kanna hverjar yrðu mótvægisaðgerðir stjórnvalda til landbúnaðarins vegna þessara breytinga. Skoraði Guðni á landbúnaðarráðherra að fara varlega í málinu.Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra benti á að farið hefði verið mjög varlega í málinu en unnið hefði verið að því árum saman. Eitt af því sem hefði verið skoðað væri áhættumat. Gert hefði verið áhættumat varðandi búfjársjúkdóma og sú áhætta hefði verið metin lítil sem engin. Íslendingar væru með heilbrigða stofna og reynt yrði að vernda þá áfram.Þá sagði hann mikilvægt að afgreiða lögin svo hægt væri að sækja viðbótartryggingar vegna sjúkdóma eins og kamfýlóbakter og salmonellu en þróun þeirra hefði verið svipuð hér og annars staðar á Norðurlöndum. Menn gætu ekki búið við óbreytt kerfi.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Fleiri fréttir Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Sjá meira