Innlent

Ók 160 kílómetra til að jafna um verkalýðsforingja

Eins og sjá má bíður Sverris það verk að taka til á skrifstofunni sinni.
Eins og sjá má bíður Sverris það verk að taka til á skrifstofunni sinni. MYND/Austurglugginn Gunnar
Það varð uppi fótur og fit á skrifstofu AFLs Starfsgreinafélags á Egilsstöðum þegar vertinn á Café Margaret á Breiðdalsvík réðst á framkvæmdastjóra félagsins, Sverri Mar Albertsson. Í frétt í 24 stundum á dögunum greint frá því að veitingamaðurinn borgi veitingastúlkum sínum lág laun auk þess sem þau séu ekki gefin upp til skatts. Í fréttinni var vitnað í Sverri og veitingamanninum Horst Muller gramdist það svo mjög að hann lagði á sig 160 kílómetra ökuferð til þess eins að ráðast á hann. Árásin verður kærð til sýslumanns.

„Við reynum að hafa fjör í þessu," sagði Sverrir þegar Vísir náði tali af honum. Hann segir að maðurinn sem um ræðir, sem er Þjóðverji, eigi „greinilega bágt." „Formaður félagsins og lögmaður okkar eru að undirbúa formlega kæru sem verður líklega send í seinna í dag." Sverrir segist hafa sloppið óskaddaður frá stympingunum en að allt sé á rúi og stúi á skrifstofunni. „Þetta er nú eldri maður og mér tókst að halda honum upp við vegg þangað til aðstoð barst, en menningarfulltrúinn á skrifstofunni skarst í leikinn og lagði mér lið," segir Sverrir.

Hann segir að forsaga málsins sé sú að í langan tíma hafi verið ólag á samskiptunum við veitingafólkið, sem stundi það að auglýsa eftir ungu starfsfólki í Austur-Þýskalandi þar sem áhugasömum sé sagt að um sé að ræða létta sumarvinnu í framandi landi. Stúlkurnar greiða sjálfar fyrir farmiða sína til landsins og eru skráðar hér sem ferðamenn. Þegar á hólminn er komið reynist „fríið" hins vegar vera 6 til 7 klukkuríma vinnudagur og fá þær fyrir vikið um 80 þúsund krónur í mánaðarlaun, auk fæðis og húsnæðis.

„Þessi umfjöllun í 24 stundum fór greinilega fyrir brjóstið á honum," segir Sverrir. „Ég gat reyndar lítið rætt við hann þar sem hann réðst umsvifalaust á mig. Þegar hann var farinn fann ég blað sem hann hafði misst en hefur greinilega fengið einhvern til að þýða á íslensku nokkur vel valin orð sem hann hefur ætlað að nota á mig. Á blaðinu stendur meðal annars að ég sé lygari, útlendingahatari og önnur verri orð. En hann kom þessum athugasemdum aldrei á framfæri, heldur rauk hann bara í mig."

Sverrir segir að hjá AFLi hafi menn í langan tíma haft á tilfinningunni að framkoma mannsins við starfsfólk sitt sé vafasöm „og að stúlkurnar þurfi í raun að búa við kúgun frá hans hendi. Ef hann lætur svona við mig, tveggja metra manninn, hvernig lætur hann þá við unglingsstúlkur sem vinna hjá honum?"

Að sögn Sverris hefur AFL áður þurft að skerast í leikinn á veitingastaðnum og hefur sambandið aðstoðað ungar stúlkur við að losna úr vistinni og komast til síns heima í Þýskalandi. „Í fyrravor kom einn pabbinn hingað gagngert til þess að ná í dóttur sína sem hafði sent honum SMS skilaboðum þar sem hún biður um að vera sótt. Samskiptin við þau hafa því ekki verið mjög aðlaðandi, ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í vinnu hjá þeim. Hótanir öskur og yfirgangur eru þeir samskiptamátar sem þetta fólk kýs að nota.

Manninum hefur greinilega verið mjög heitt í hamsi, því hann reyndi að finna Sverri á föstudaginn. „Þá var ég ekki staddur á skrifstofunni Þetta eru 160 kílómetrar sem hann þarf að fara. Þetta hristi aðeins upp í okkur hérna í morgun en samstarfskonan mín á skrifstofunni er ánægð með þetta vegna þess að ég neyðist til þess að taka til á skrifborðinu," segir Sverrir Albertsson að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×