Innlent

Frístundakortið nýtist á frístundaheimilum

Sóley Tómasdóttir.
Sóley Tómasdóttir.

Íþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt tillögu fulltrúa Vinstri grænna um að breyta reglum um frístundakortið. Breytingin verður til þess að foreldrar geta nýtt kortið til að greiða fyrir frístundaheimili ef þau svo kjósa.

„Í frístundaheimilum ÍTR eru börn á aldrinum 6-9 ára kynnt fyrir fjölbreyttu og uppbyggjandi frístundastarfi, auk þess sem þar er markvisst unnið að því að þroska félags- og samskiptafærni barna," segir Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi Vinstri grænna. „Starfið er faglegt og metnaðarfull og uppfyllir öll þau skilyrði sem sett hafa verið fyrir notkun kortsins frá upphafi."

Sóley bendir á að á fyrstu árum í grunnskóla taka börn út mikinn þroska, sem meðal annars felist í að þróa með sér áhugamál til framtíðar og skipta frístundaheimilin þá sköpum. „Megintilgangur frístundakortanna er að auðvelda börnum og unglingum í Reykjavík að sinna uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag foreldra," segir hún.

Vinstri græn hafa, að sögn Sóleyjar, alla tíð lagt áherslu á að til að frístundakortin virki sem raunverulegt jöfnunartæki, verði frístundaheimilin að vera þar valkostur. „Nú, þegar efnahagsástandið krefst endurskoðunar á útgjöldum margra fjölskyldna, er brýnna en nokkru sinni að foreldrar hafi fullt frelsi til að ráðstafa frístundakortinu í þær tómstundir sem þeir telja að nýtist börnum sínum best. Það er því fagnaðarefni að tillagan hafi loksins verið samþykkt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×