Bruni í fjölbýlishúsi: Grunur um íkveikju 6. janúar 2008 19:04
Mikið tjón varð þegar eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi við Neshaga í nótt. Talið er líklegt að um íkveikju hafi verið að ræða en eldurinn stofnaði lífi fjölda fólks í hættu. Árið 2006 var bensínsprengju kastað inn í þessa sömu íbúð. Það vegfarandi sem gerði slökkviliðinu viðvart um eldinn laust fyrir klukkan eitt í nótt. Mikill eldur var í íbúðinni þegar slökkvilið bar að garði og mátti minnstu muna að eldurinn næði að breiðast út. Í fyrstu var óttast að fólk væri inni í íbúðinni en seinna kom í ljós að íbúðin var mannlaus og húsráðandi, einstæð tveggja barna móðir í útlöndum. Mikinn reyk lagði upp eftir stigagangi hússins og voru allar íbúðir rýmdar. Ein fjölskylda kaus að gista á hóteli það sem eftir lifði nætur. Slökkvistarf tók um hálftíma en engan sakaði. Charles Louis Du Beck, sem býr í risíbúð hússins, var sofandi ásamt syni sínum þegar lögreglan vakti hann upp. Hann segist hafa þurft að vefja 4 ára gamlan son sinn inn í teppi til að hlífa honum við reyknum. Charles er mjög skelkaður eftir þessa lífsreynslu og segir ljóst að hann hefði lokast inni í íbúð sinni ef eldurinn hefði náð að breiðast út. Eitt af hans fyrstu verkum í morgun var að kaupa reykskynjara og reipi. Sonur hans mun þó sofa annars staðar í nótt. Líklegt er að kveikt hafi verið í íbúðinni af ásettu ráði en lögreglan rannsakar nú málið. Í ágúst árið 2006 var bensínsprengju kastað inn í sömu íbúð og hugsanlegt að þessi tvo mál tengist. Lögreglan verst þó allra frétta en samkvæmt heimildum fréttastofu beinist rannsókn málsins nú að einum ákveðnum aðila. Skýrslur hafa verið teknar af vitnum en enginn hefur þó enn verið yfirheyrður.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira