Segir misskilnings gæta um hlutverk Valtýs og Boga 3. nóvember 2008 21:21 Björn Bjarnason dómsmálaráðherra.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir misskilnings gæta um hlut Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara og Boga Nilssonar, fyrrverandi ríkissaksóknara, um að verkefni þeirra sé að rannsaka eða stjórna rannsókn einstakra mála, sem kunna að spretta af hruni bankanna og vísað er til lögreglu. Í Kastljósi kvöldsins var rætt um óheppilega ættartengsl þeirra Valtýs og Boga en margir þingmenn telja þá vanhæfa til verksins. Þeim hefur verið falið það verkefni að vinna skýrslu um hrun viðskiptabankanna þriggja og hvort tilefni sé til lögreglurannsóknar. Sonur Valtýs er m.a forstjóri Exista, stærsta hluthafa gamla Kaupþings en sonur Boga er m.a forstöðumaður lögfræðisviðs Stoða. Björn segir málsmeðferðina tvíþætta. „Í fyrsta lagi að kortleggja stöðuna, átta sig á umfangi og stofna til tengsla við þá, sem þegar eru teknir til við að rannsaka einstök mál, án þess að um lögreglumál sé að ræða. Þetta starf er að fara af stað. Ríkissaksóknari telur, að líklega þurfi erlenda sérfræðinga til að átta sig á öllum þráðum til að heildarmyndin fáist. Hann hefur kynnt málið fyrir allsherjarnefnd alþingis," segir Björn á heimasíðu sinni í kvöld. Í öðru lagi segir hann verkefni þeirra félaga að rannsaka einstök mál í samvinnu við lögreglu. „Hugmynd mín er, að þarna komi sérstakur saksóknari til sögunnar og er frumvarp um hann á lokastigi í vinnslu á mínum vegum. Hvert skref, sem stigið hefur verið í þessu máli, hefur verið kynnt á opinberum vettvangi. Ríkissaksóknari kynnti hugmynd um kortlagninguna, ég samþykkti hana og skýrði fyrst frá henni á alþingi. Ég lít á hana sem nauðsynlegan og tímabæran undirbúning undir sakamálarannsóknina sjálfa, verði efnt til hennar, og viðleitni til að búa skipulega í haginn fyrir hana, einfaldlega til marks um vönduð vinnubrögð."
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Fleiri fréttir Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Sjá meira