Norðmenn lána Íslendingum 80 milljarða króna 3. nóvember 2008 16:27
Norðmenn munu lána Íslendingum 4,2 milljarða norskra króna, jafnvirði um 80 milljarða íslenskra króna, vegna efnahagskreppunnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu norska fjármálaráðuneytisins en vitnað er til hennar á vef Aftenposten. Þar er jafnframt sagt að norsk stjórnvöld hafi ákveðið að framlengja gjaldeyrisskiptasamninga, sem gerðir voru á milli landanna í sumar, út næsta ár. Þeir áttu að renna út í lok þessa árs og höfðu Íslendingar þegar dregið á hluta þeirra. Í yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu segir að Seðlabanki Noregs veiti þeim íslenska lánið en norska ríkisstjórnin muni eins fljótt og auðið er leggja fram tillögu fyrir Stórþingið um að ríkisábyrgð fyrir slíku láni. Lánið verður til 4-5 ára eftir því sem segir í yfirlýsingunni. Þar er einnig haft er eftir Kristinu Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, að bankastjórn Seðlabanka Noregs hafi í síðustu viku samþykkt að framlengja gjaldeyrisskiptasamninginn við Seðlabanka Íslands að ósk hins síðarnefnda. Enn fremur hafi Seðlabanki Noregs fallist á langtímalán í evrum, andvirði 500 milljóna evra, eða 4,2 milljarða norskra króna. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jonas Gahr Störe funduðu hér á landi í dag en þar kom fram að engar tölur hefðu verið nefndar um lán en að það yrði gert á næstu dögum. Þetta lán bætist við 250 milljarða króna lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem þegar hefur verið sótt um.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira