Bíræfni bílþjófurinn stöðvaður í Borgarnesi 19. nóvember 2008 13:20 Bíllinn er af gerðinn Volkswagen Golf árgerð 2003 og er skráningarnúmer hans JY-409
Vísir sagði í gær frá manni sem heimsótti Bílahúsið í Reykjanesbæ á laugardaginn. Þáði hann kakó, köku og fékk að reynsluaka silfurlituðum Volkswagen Golf. Var maðurinn hinn viðmótlegasti en bílnum hefur hann enn ekki skilað. Guðni Daníelsson, framkvæmdarstjóri Bílahúss, segist hafa fengið mikil viðbrögð í kjölfar fréttar Vísis í gær og sést hafi til bílþjófsins víða um land. Lögreglan í Borgarnesi hafði svo uppi á manninum fyrir stundu. „Við fengum mikil viðbrögð. Það hefur sést til hans á Akranesi , Hvolsvelli og Laugarvatni. Einnig hafa nokkrir aðilar í Reykjavík haft samband, hann virðist samt alltaf vera feti á undan," segir Guðni sem veit vel hver maðurinn er. Hann hafi þó verið að villa á sér heimilidir með skilríkjum sem hann stal úr veski. „Hann hefur þóst vera einhver Stefán og hefur farið víða á því nafni." Guðni segir að Bílahöllin hafi haft samband við sig en sami maður hefur stolið einum bíl frá þeim. „Hann fer víst nokkuð vel með bílana, fyrir utan það að hann reykir í þeim." Eins og fyrr segir stöðvaði lögreglan í Borgarnesi manninn fyrr í dag og verður hann fluttur til Reykjavíkur í yfirheyrslur. Guðni hafði lofað fundarlaunum og aðspurður hvort lögreglan fái þau segir hann: „Þeir geta komið til mín og fengið kakó."
Tengdar fréttir Þáði kakó og stal bíl Víða er hægt að gera kostakaup á bílum þessa dagana. Það dugði þó ekki manni sem kom til að skoða bíla hjá Bílahúsinu á Laugardag. Hann vildi fá sinn frítt. 18. nóvember 2008 10:34 Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira
Þáði kakó og stal bíl Víða er hægt að gera kostakaup á bílum þessa dagana. Það dugði þó ekki manni sem kom til að skoða bíla hjá Bílahúsinu á Laugardag. Hann vildi fá sinn frítt. 18. nóvember 2008 10:34