Ánægja með uppbyggingu á Vallarheiði 18. september 2008 18:23
Mikill meirihluti íbúa á Vallarheiði í Reykjanesbæ er ánægður með uppbygginguna á svæðinu og þá þjónustu sem þar er boðið upp á samkvæmt nýrri könnun sem Capacent vann fyrir þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Alls töldu 92% íbúa í könnuninni uppbyggingu á Vallarheiði hafa tekist mjög eða frekar vel og rúmlega 87% voru ánægð með hana sem stað til að búa á. Tæplega 93% voru ánægðir með íbúðina sem þeir voru með á leigu. Þegar spurt var hversu líklegt eða ólíklegt það væri að íbúar myndu dvelja áfram í Reykjanesbæ eftir að námi lýkur töldu tæplega 50% að það væri líklegt Mikil fjölgun íbúa hefur orðið á Vallarheiði frá því að Varnarliðið fór af landi brott en nú búa þar um 1700 manns og fer ört fjölgandi. Keilir, miðstöð fræða og vísinda býður þar upp á háskólanám, þar eru nú einn leikskóli auk grunnskóla fyrir nemendur í 1. - 5. bekk og annar leikskóli opnar þar á næstunni. Alls eru yfir 40 ný fyrirtæki á svæðinu og má þar nefna gagnaver Verne sem þegar hefur auglýst eftir starfsfólki. Þjónustufyrirtæki hafa óðum verið að koma sér fyrir og má þar nefna bensínstöð, matvöruverslun og íþróttahúsið. Boðið er upp á reglulegar ferðir á milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur fyrir námsmenn og nýttu um það bil 50% íbúa í könnuninni sér þá þjónustu þó mismikið. Af þeim voru tæplega 67% mjög eða frekar ánægðir með ferðirnar. Meirihluti var ánægður með þjónustu Keilis eða 61,5% og rúmlega 78% var ánægður með internettengingar í húsnæði á Vallarheiði. Könnunin var gerð 13. - 25. maí sl. í gegnum síma en í þýði voru 389 íbúar á Vallarheiði eða allir leigutakar á svæðinu á þeim tíma. Svarhlutfall var 58,5%.
Mest lesið „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Kom ekki á teppið Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Innlent Fleiri fréttir Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Sjá meira