Glæsibifreiðar hluti af launakjörum nýju bankastjóranna 5. nóvember 2008 18:30
Bifreiðahlunnindi eru hluti af launakjörum stjórnenda Nýja Glitnis og Landsbankans, auk einhverra annarra lykilstjórnenda. Leynd hvílir enn yfir launakjörum bankastjóra Nýja Landsbankans. Það hefur reynst þrautin þyngri að fá upplýsingar um hlunnindi lykilstjórnenda nýju bankanna. Enn skirrist Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Nýja Landsbankans, við að gefa upp laun sín og vísar til þess að starfsemi bankans falli ekki undir stjórnsýslulög og sé því ekki upplýsingaskyld. Fréttastofan hefur þó aflað sér heimilda um að Elín aki um á glæsilegri Bensbifreið sem skráð er á bankann og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði í gær að launakjör Elínar væru á svipuðum nótum og bankastjóra hinna bankanna, en þeir eru með eina milljón og sjö hundruð og fimmtíu þúsund krónur í mánaðarlaun. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis ekur einnig um á gæsibifreið sem er skráð á bankann og fréttastofu er kunnugt um að fleiri lykilstjórnendur bankans njóti bílafríðinda, sumir þó aðeins tímabundið. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, var eini stjórnandinn sem talaði við fréttastofu. Hann segist ekki njóta bifreiðahlunninda, hann ætti þó kost á því, en þá myndi það dragast frá launum hans. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun það vera venjan að bifreiðahlunnindi séu hluti af launum, en leggist ekki ofan á þau.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Sjá meira