Fangelsi er ekkert hótel SB skrifar 19. júní 2008 13:58 Erlendur Baldursson, deildarstjóri hjá Fangelsismálastofnun. Segir fangelsi ekki hótel.
Fréttin um Idol-stjörnuna Kalla Bjarna sem spilar golf og skrifar barnabók á Kvíabryggju hefur vakið sterk viðbrögð almennings. Erlendur Baldursson hjá fangelsismálastofnun segir Kvíabryggju ekkert hótel þrátt fyrir golfvöll og ný rúm. "Þeir sem kalla fangelsi hótel vita ekki hvað þeir eru að tala um. Maður heyrir þetta stundum hjá fjölmiðlum en aldrei hjá ættingjum sem eiga einhvern nákominn í fangelsi," segir Erlendur. Kalli Bjarni afplánar tveggja ára fangelsisdóm sem hann fékk eftir að hafa flutt inn tæp tvö kíló af kókaíni. Í Séð og Heyrt kemur fram að hann afpláni á Kvíabryggju; lífið leiki við hann og hann noti frístundir sínar til að spila golf og skrifa barnabók. Forsíða Séð og Heyrt. Kalli Bjarni í golfi. Þá hefur vakið athygli hverjir fá að dvelja á Kvíabryggju og hverjir ekki. Til dæmis afplánaði handrukkarinn Annþór Kristján Karlsson eitt sinn hluta af dómi á Kvíabryggju. "Reglan er sú að menn sem vistast í opnum fangelsum verða að vera hæfir til þess og miðað er við að þeir dvelji ekki lengur en tvö ár á staðnum," segir Erlendur. Í Séð og Heyrt í dag er haldið áfram að fjalla um Kvíabryggju. Taldir eru upp frægir einstaklingar sem hafa afplánað á Kvíabryggju og komið út betri menn. Þar á meðal er Pétur Þór Gunnarsson, sem opnaði nýverið aftur Gallerí Borg, Ármann Reynisson sem í dag er frægur vinjettuhöfundur, Knútur Brún lögfræðingur sem varð formaður safnráðs Listasafns Íslands og ekki má gleyma Árna Johnsen sem gerði dvölina á Kvíabryggju að skapandi sumarstarfi. "Kvíabryggja rís undir nafni sem betrunarstofnun þar hafa fallin og fölnuð blóm sprungið út á ný. Allir eiga rétt á öðru tækifæri," segir Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og Heyrt, í leiðara blaðsins í dag.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira