Bílstjórinn bjargaði því sem bjargað varð 11. ágúst 2008 14:36 MYND/Egill
Bílstjórinn í rútunni sem lenti í hörðum árekstri við jeppa á Suðurlandsvegi brást hárrétt við og forðaði frekara slysi. Þetta segir Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir, starfsmannastjóri Kynnisferða, félagsins sem á rútuna. „Hann bjargaði því sem bjargað varð enda er þarna mjög vanur maður á ferð," segir Sigríður. Rúmlega þrjátíu manns voru í rútunni, bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar, en hún var á leið í Skaftafell. Bílstjórinn mun hafa komið í veg fyrir að rútan hafnaði ofan í skurði sem var skammt frá vettvangi. Fimm í rútunni voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar, bílstjórinn og bílþjónn ásamt þremur farþegum. Bílþjónninn mun hafa skorist þegar hann fékk glerbrot í hálsinn. Sigríður bendir á að allir farþegar hafi verið í beltum enda sé merki í hverri einustu rúðu í rútunni um að fólki beri að vera með þau. Sigríður segir aðspurð að það hafi örugglega haft mikið að segja um að ekki fór verr. Langflestir farþeganna þáu áfallahjálp hjá Rauða krossinum.MYND/RKÍ Í tilkynningu frá Rauða krossi Íslands segir að flestir farþegarnir hafi verið fluttir í höfuðstöðvar samtakanna í Efstaleiti þar sem þeir fengu áfallahjálp. Hafði Rauði krossinn útvegað túlka á ítölsku, portúgölsku, þýsku og ensku til að aðstoða ferðafólkið og hlúa að því. Þá kom bílstjórinn og heilsaði upp á fólkið eftir að hann hafði farið í skoðun á slysadeild. Rauði krossinn segir marga hafa verið slegna vegna slyssins en að allir hafi haldið ró sinni. Agnar Daníelsson, rekstrarstjóri Kynnisferða, segir að við öll óhöpp fari í gang ákveðið verkferli sem fylgt hafi verið að þessu sinni. Hann segir flesta ferðamennina hafa farið til Reykjavíkur og þegið áfallahjálp hjá Rauða krossinum. Tildrög slyssins voru að ökumaður jeppa, sem ók í átt að Hveragerði, hugðist beygja til vinstri inn á Kirkjuferjuveg og hafði nánast numið staðar til að bíða eftir rútu sem kom á móti. Þá bar að lítinn sendibíl, sem ók aftan á jeppann, sem kastaðist við það framan á rútuna og höfnuðu rútan og jeppinn utan vegar. Einum er haldið sofandi á gjörgæsludeild eftir slysið.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira