Rannsaka enn margra milljarða millifærslur frá Kaupþingi 5. nóvember 2008 11:49
Skilanefnd Kaupþings hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ekkert liggi fyrir um að fjármunum hafi verið með ólögmætum hætti ráðstafað úr sjóðum bankans eða að peningar hafi verið færðir til landa þar sem erfitt er að komast að því hver reikningseigandinn er, eins og gefið hafi verið til kynna í fréttum Stöðvar 2 og Vísis í gær. Enn sé verið að rannsaka starfsemi bankans. Fréttastofa sagði frá því að hún hefði heimildir fyrir því að hundrað milljarðar hefðu verið millifærðir úr sjóðum Kaupþings inn á erlenda bankareikninga skömmu áður en bankinn var þjóðnýttur. Í yfirlýsingu skilanefndar bankans vegna fréttarinnar segir að Fjármálaeftirlitið hafi falið skilanefndinni að ráða óháðan sérfræðing til að kanna hvort vikið hafi verið frá innri reglum bankans, lögum og reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, lögum um verðbréfaviðskipti, almennum hegningarlögum svo og öðrum réttarheimildum sem varðað geti háttsemi einstaklinga og lögaðila sem athugunin beinist að.Í samræmi við þessi tilmæli hafi skilanefndin strax ráðið óháðan sérfræðing til verksins og hann hafi haft óheftan og milliliðalausan aðgang að öllum gögnum bankans í tengslum við athugunina. Vinnan sé í fullum gangi og um um gríðarlegt magn gagna, upplýsinga og færslna sé að ræða á því tímabili sem sé til skoðunar. Á þessu stigi málsins sé ekki unnt að greina frá niðurstöðu athugunarinnar enda sé henni ekki lokið. „Í tilefni af nefndum fréttaflutningi vill skilanefnd þó taka fram að ekkert liggur fyrir um að fjármunum hafi verið með ólögmætum hætti ráðstafað úr sjóðum bankans eða að peningar hafi verið færðir til landa þar sem erfitt er að komast að því hver reikningseigandinn er, eins og gefið var til kynna í fréttum ofangreindra fjölmiðla. Skilanefndin hyggst sjá til þess að athugun hins óháða sérfræðings verði lokið innan eðlilegs tíma eins og ráð var fyrir gert og í framhaldi af því kynna niðurstöður þeirrar athugunar fyrir Fjármálaeftirlitinu," segir í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Milljarðar millifærðir úr sjóðum Kaupþings fyrir þjóðnýtingu Hundrað milljarðar voru millifærðir úr sjóðum Kaupþings inn á erlenda bankareikninga skömmu áður en bankinn var þjóðnýttur. Skilanefnd bankans rannsakar nú hvort þessum fjárhæðum hafi verið skotið undan. 4. nóvember 2008 18:32 Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira
Milljarðar millifærðir úr sjóðum Kaupþings fyrir þjóðnýtingu Hundrað milljarðar voru millifærðir úr sjóðum Kaupþings inn á erlenda bankareikninga skömmu áður en bankinn var þjóðnýttur. Skilanefnd bankans rannsakar nú hvort þessum fjárhæðum hafi verið skotið undan. 4. nóvember 2008 18:32