Innlent

Íbúar Seljahverfis fjölmenntu á íbúafund

Um tvöhundruð manns mættu á fundinn.
Um tvöhundruð manns mættu á fundinn. MYND/Af heimasíðu lögreglunnar

Fjölmenni var á íbúafundi sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð fyrir í Ölduselsskóla í Seljahverfi í gærkvöld. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að mikil ánægja hafi verið með fundinn en á honum kynnti lögregla skipulag löggæslu í hverfinu.

„Stefán Eiríksson lögreglustjóri fór jafnframt yfir stöðu mála og svaraði fjölmörgum fyrirspurnum en fundargestir voru nálægt tvö hundruð," segir í tilkynningunni.

Áhyggjur voru viðraðar af innbrotum í hverfinu en tilkynnt var um átján innbrot í Seljahverfi fyrstu átta mánuði ársins. „Á sama tímabili 2007 voru þau fimmtán og sextán árið þar á undan." Lögregla benti á að almennt hafi hinsvegar dregið úr hegningarlagabrotum í Seljahverfi í samanburði við meðaltal áranna 2006 og 2007.

„Á fundinum skapaðist mikil umræða um forvarnarstarf en í þeim efnum geta íbúarnir sjálfir gert heilmargt eins og t.d. með því að taka upp svokallaða nágrannavörslu," segir að lokum.

Nánar má fræðast um tölfræði varðandi Seljahverfi hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×