Innlent

45 daga fangelsi fyrir bílþjófnað

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt 24 ára karlmann í 45 daga fangelsi fyrir bílstuld.

Maðurinn tók bílinn ófrjálsri hendi á Vopnafirði í fyrra og ók honum um götur bæjarins. Fyrir dómi játaði hann brot sitt og var höfð hliðsjón af því þegar refsing var ákveðin. Í ljósi þess að marðurinn átti að baki alllangan sakaferil og að um ítrekunarbrot var að ræða þótti dóminum hins vegar ekki efni til þess að skilorðsbinda refsinguna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×