Innlent

SVÞ vilja aðildarviðræður við ESB

Samtök verslunar og þjónustu hvetja íslensk stjórnvöld til að lýsa yfir vilja til að undirbúa viðræður að aðild að Evrópusambandinu. Samtökin vilja að samhliða aðildarviðræðum fari fram ,,ítarlegar, hlutlausar og fordómalausar umræður á opinberum vettvangi um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu," eins og segir í tilkynningu frá SVÞ.

Samtökin vilja að stjórnvöld kalli til samstarfs fulltrúa atvinnulífsins og aðra hagsmunaðila í því skyni að fjalla um hvaða forsendur þurfa að vera til staðar til að aðild að Evrópusambandinu teljist fýsilegur kostur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×