Innlent

BÍ sakar stjórnvöld um tilraun til ritskoðunar í ísbjarnarmáli

Ísbjörninn sem felldur var að Hrauni.
Ísbjörninn sem felldur var að Hrauni. MYND/Valli

Blaðamannafélag Íslands harmar að yfirvöld skyldu hafa takmarkað aðgang fréttamanna að ísbjarnarhræinu við Hraun á Skaga í síðustu viku.

Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar BÍ í hádeginu. Þar segir einnig að félagið átelji einkum að lögreglu skuli hafa verið skipað að loka þjóðvegi til þess að hindra fréttamenn í vinnu sinni eftir að björninn hafði verið veginn.

Umhverfisráðherra hefur upplýst að tilgangurinn hafi verið að koma í veg fyrir óheppilegar myndir sem skaðað gætu ímynd landsins. Blaðamannafélagið segir að blaðamenn eigi ekki einungis lögvarinn rétt heldur beri þeim skylda til að afla frétta og miðla þeim í þágu almennings. Allir tilburðir til þess að takmarka aðgang fjölmiðla að fréttaviðburðum, til dæmis með því að hindra myndatökur, feli í sér tilraunir til ritskoðunar.

Blaðamannafélagið ítrekar að það sé ekki í verkahring yfirvalda að stýra því sem er myndað eða sagt. Ritstjórnarvaldið og ábyrgðin sé hjá fjölmiðlunum sjálfum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×