Jafnréttissetur stofnað og bleikir steinar afhentir á kvennadegi 19. júní 2008 12:27
Kvenrréttindadagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Femínistafélag Íslands afhenti bleiku steinana við hátíðlega athöfn í morgun en í fyrsta skipti var móttöku þeirra hafnað. Kvenréttindadagurinn verður haldinn hátíðlegur um allt land í dag en þess er minnst að 94 ár eru síðan konur fengu kosningarétt hér á landi. Fjölmargir viðburðir verða haldnir í tengslum við daginn. Dagskráin hófst í morgun þegar utanríkisráðuneytið og Háskóli íslands undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf um stofnun Jafnréttisseturs og Jafnréttisskóla sem ráðgert er að koma á stofn í nóvember. Bleiku steinarnir voru afhentir á Austurvelli.MYND/Stöð 2 Meðlimir í Femínistafélagi Íslands afhentu bleiku steinanna við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli í morgun. Með þeim vill félagið minna á mikilvægi þess að hafa jafnréttissjónarmið í huga við ákvarðanatöku og hvetja handhafa steinanna til að kynna sér femínisma. Dómsmálaráðherra og yfirmaður kynferðisbrotadeildar ríkislögreglustjóra veittu steinunum viðtöku að þessu sinni en athygli vakti að forseti Hæstaréttar og og formaður dómarafélagsins afþökkuðu boð félagsins þar sem þeir vildu gæta hlutleysis. Þetta er í fyrsta sinn sem bleiku steinarnir eru afþakkaðir. Af fleiri viðburðum má nefna Bríetargönguna undir leiðsögn Auðar Styrkársdóttur, móttöku Kvenréttindafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands og Bandalags kvenna í Reykjavík í samkomusal Hallveigarstaða og kvennamessu við þvottalaugarnar í Laugardal í kvöld þar sem Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra predikar. Og á Akureyri verður haldið Norrænt þing kvenfélaga. Þingið verður sett klukkan eitt í dag og stendur það fram á sunnudag.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira