Innlent

Í spreng fyrir utan Baðhúsið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um innbrotstilraun í Baðhúsið í Brautarholti rétt fyrir klukkan fimm í morgun.

Lögreglumenn handtóku þann sem var að verki og færðu hann á lögreglustöð þar sem rætt var við hann. Maðurinn, sem er gamall góðkunningi lögreglunnar, gaf þær skýringar á hátterni sínu að hann hefði þurft að pissa. Lögreglan sleppti svo manninum eftir að hafa rætt við hann.

Að öðru leyti var rólegt á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þrír voru kærðir fyrir ölvun við akstur en lögreglan segir að afar friðsamlegt hafi verið í miðborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×