Sigurjón telur rétt að Guðjón íhugi að stíga til hliðar 10. september 2008 10:22
Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, telur rétt að Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, íhugi það hvort hann víki til hliðar á komandi landsþingi flokksins. Þetta sagði Sigurjón í Bítinu á Bylgjunni í morgun.Fram kom á Vísi í gærkvöld að stjórn Frjálslynda flokksins í Eyjafirði hefði skorað á Sigurjón að gefa kost á sér til formennsku í flokknum á landsþingi flokksins sem haldið verður í janúar á næsta ári. „Maður verður náttúrulega að skoða þetta," sagði Sigurjón þegar Vísir ræddi við hann í gær.Sigurjón ræddi þessar hugmyndir svo aftur í útvarpinu í morgun og ítrekaði að hann væri að skoða þetta. „Ef af yrði þá myndi ég helst vilja að Guðjón Arnar myndi styðja mig til forystu," sagði Sigurjón. Aðspurður hvort hann teldi að tími væri kominn til að Guðjón viki til hliðar sagði Sigurjón að menn yrðu að skoða það í aðdraganda þingsins. Þegar gengið var á Sigurjón sagði hann: „Mér finnst vera rétt að hugleiða það. Annars hefði maður bara slegið þetta strax út af borðinu."Fram kom í Fréttablaðinu í dag að tveir framámenn flokksins, þingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson og varaformaðurinn Magnús Þór Hafsteinsson, deildu vegna komu flóttamanna á Akranes. Um þessar deilur og aðrar segir Sigurjón að það sé mjög góður andi innan þingflokksins „ef frá eru skilin vandræði sem fylgja Kristni eilíft." Kristinn verði að taka sig taki og aðlaga sig að nýjum húsakynnum.Viðtalið er hægt að nálgast hér.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Sjá meira