Vildi leggja sitt af mörkum 13. október 2008 07:00 Inga Björg hitti Rögnu og Ellu Dís í fyrsta sinn þegar myndin var tekin, þótt þær hefðu verið í miklu símasambandi við Rögnu að undanförnu vegna tónleikanna. MYND/Arnþór
Inga Björg Stefánsdóttir hefur skipulagt styrktartónleika fyrir Ellu Dís Laurens. Tónleikarnir verða haldnir í kvöld og kemur fjöldi þekktra listamanna fram. „Á dauða mínum átti ég von, en ekki að ég ætti eftir að skipuleggja tónleika í Háskólabíói," segir Inga Björg Stefánsdóttir tónmenntakennari í Mýrarhúsaskóla, sem stendur fyrir tónleikum til styrktar Ellu Dísar Laurens og fjölskyldu hennar í Háskólabíói klukkan átta í kvöld. Ella Dís fæddist heilbrigð árið 2006, en hefur þjáðst af ógreindum hörnunarsjúkdómi í rúmt ár og hefur lækniskostnaður við próf, rannsóknir og utanlandsferðir sem hún hefur þurft að ganga í gegnum verið í kringum fimmtán til sextán milljónir. „Ég var bara ein af þeim sem fylgdist með bloggi Rögnu Erlendsdóttur, móður Ellu Dísar. Þegar ég sá að einhver spurði hvort ekki væri hægt að halda styrktartónleika ákvað ég að hringja í Rögnu og sagðist vilja taka það að mér. Þetta áttu bara að vera litlir tónleikar í upphafi, en svo stækkaði þetta og stækkaði. Allir listamennirnir voru rosalega viljugir og gefa allir vinnu sína, auk fjölda fólks frá Töfrahellinum sem sér um tæknivinnuna." útskýrir Inga Björg, en meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Páll Óskar, Diddú, Magni, Birgitta Haukdal og Páll Rósinkrans. Aðspurð segist hún ekki hafa þekkt til Rögnu og fjölskyldu hennar þegar hún ákvað að taka að sér tónleikahaldið. „Ég á fimm börn sjálf og ég get ekki ímyndað mér ef eitthvað þeirra væri veikt og ég þyrfti að hafa peningaáhyggjur í ofanálag. Það eru margir í þessari aðstöðu og fyrst ég gat ekki gefið henni milljónir sá ég tækifæri til að aðstoða hana með þessu móti," segir Inga Björg og vonast til að sjá sem flesta á tónleikunum í kvöld. „Þetta lendir á erfiðum tíma því fólk er í áfalli í kringum mann út af efnahagsástandinu, en við höfum heilsuna og höfum gott af því að hlúa að sálinni, koma og gleyma amstri dagsins og hjálpa Ellu litlu. alma@frettabladid.is
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Lífið samstarf Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Lífið samstarf Fleiri fréttir Vill vera sú fyrirmynd sem hún hefði þurft Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira