Segir ekki útilokað að kosið verði á næstu mánuðum 19. október 2008 20:05
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki sjá nauðsyn til þess að endurskoða stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar þrátt fyrir þau áföll sem dunið hafa á íslensku efnahagskerfi. Í þætti Sigmundar Ernis Rúnarssonar, Mannamáli, sagði hann að ríkisstjórnarsamstarfið hefði styrkst að undanförnu. Hins vegar sagði hann ekki hægt að útiloka að gengið yrði fyrr til kosninga, í vetur eða næsta vor. „Við erum ekkert að víkjast undan því," sagði Björn. „Það fer eftir því hvað menn telja skynsamlegast að gera." Hann sagði að undanfarnar vikur myndu hafa áhrif víða í samfélaginu og einnig í umhverfi stjórnmálanna. Þegar Sigmundur spurði hann hvort hann væri að boða til kosninga sagðist Björn alls óvíst hvort hann ætlaði sér að bjóða sig fram á ný. Í þættinum ræddi Björn einnig mögulega lántöku Íslendinga í Rússlandi. Hann sagðist telja að Rússar væru með lánveitingunni að spila "geopólitískan" leik. „Við værum meðvitundarlausir ef við áttuðum okkur ekki á því," sagði ráðherrann og bætti því við að það væri ástæðan fyrir því hve mikla athygli lánið hefði vakið hjá öðrum þjóðum. Hann sagðist þó alls ekki vera mótfallinn lántöku hjá Rússum væri rétt að henni staðið. „Ég hef sagt að viðskipti við Rússa eigi rétt á sér eins og við allar aðrar þjóðir og ég er tilbúinn að ræða allar hliðar málsins." Að lokum spurði Sigmundur Björn hvernig honum sem gömlum "moggamanni" litist á að Morgunblaðið væri orðið "Baugsmiðill". „Það myndi ég nú ekki segja," sagði Björn. „Er Baugur til? Er það ekki ríkið meira og minna sem á þetta?"
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira