Innlent

LÍN vill að bankar hækki yfirdrátt námsmanna erlendis

MYND/Hari
Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna samþykkti á fundi sínum í gær að beina þeim tilmælum til banka og sparisjóða að leita leiða til að hækka skammtímalán námsmanna erlendis í samræmi við hækkun á gengi erlendra gjaldmiðla.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum. Þar kemur einnig fram að margir námsmenn hafi samið um yfirdráttarlán í íslenskum krónum hjá bönkum og sparisjóðum út frá lánsáætlun LÍN í erlendri mynt vegna náms fyrir yfirstandandi skólaár. Almennt megi gera ráð fyrir að yfirdráttarsamningur lánþega hafi verið miðaður við gengi útreikningarmyntar LÍN þegar samningurinn var gerður.

Hins vegar hafi gengi íslensku krónunnar lækkað mikið og því hafi Samtök íslenskra námsmanna erlendis óskað eftir því að LÍN athugaði hvort bankarnir væru reiðubúnir að koma til móts við námsmenn með því að hækka yfirdráttarheimild þeirra til samræmis við hækkun á væntanlegu námsláni.

Þá fagnar LÍN því að bankar og sparisjóðir hafi á undanförnum misserum boðið námsmönnum erlendis yfirdráttarlán í erlendri mynt. Þar með sé allri óvissu vegna gengisþróunar á rástöfunarfé til framfærslu verið eytt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×