Innlent

Bjarni kannast ekki við loforð Geirs

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. MYND/Vilhelm

Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki kannast við að vera með loforð upp á vasann frá Geir H. Haarde að hann taki við ráðuneyti á næstunni. Heimasíðan "Orðið á götunni" segir í dag að þar til fyrir nokkrum dögum hafi flest bent til þess að Bjarni væri á útleið úr pólitík. Það hafi hins vegar breyst eftir einkafund sem hann átti að hafa átt með Geir Haarde forsætisráðherra nýlega þar sem Geir lofaði Bjarna því að fljótlega verði gerðar breytingar á ríkisstjórninni og þá verði hann ráðherra.

„Ég kannast ekki við þetta og hef engan slíkan fund átt með Geir," segir Bjarni í samtali við Vísi. Aðspurður hvort rétt sé að hann hafi verið að hugleiða að hætta sem alþingismaður segir Bjarni það einnig vera rangt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×