Dagbók Matthíasar: Sverrir með mikilvæg trúnaðarskjöl í sínum fórum 28. ágúst 2008 19:06
Fyrrverandi bankastjóri Landsbankans mætti með trúnaðarskjöl um skuldastöðu stjórnmálaflokka og einstaklinga á fund fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins . Þetta má ráða af opinberri dagbókarfærslu Matthíasar Johannessen. Sex dögum eftir af Sverrir Hermannsson gekk svo eftirminnilega út úr Landsbankanum með plastpoka í hönd, eftir að hafa hrakist úr starfi sem bankastjóri, átti hann fund með Styrmi Gunnarssyni og Matthíasi Johannessen fyrrverandi ritstjórum Morgunblaðsins. Matthías lýsir þeim fundi í dagbók sinni á Netinu. „Sverrir Hermannsson kom rétt fyrir hádegi og sagði að hann væri með skjöl úr Landsbankanum sem ákveðnir menn vildu ná af honum upp á líf og dauða. Við hlustuðum. Hann tók upp skjöl úr pússi sínu, yfirlit um fyrirgreiðslu bankans við pólitíkusa og skuldir stjórnmálaflokka við bankann." Ólafur Ragnar Grímsson forseti kom einnig til tals á þessum fundi samkvæmt dagbók Matthíasar. „Hann var í opinberri heimsókn á Seltjarnarnesi fyrir helgina. Sverrir sagði brosandi, Við hefðum átt að halda uppboð á húsinu hans á Nesinu í tilefni dagsins. Það hefði kórónað þessa opinberu heimsókn!!" Í lögum frá árinu 2002 um fjármálafyrirtæki er kveðið á um þagnarskyldu stjórnarmanna um viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi. Þar segir einnig að „Sá sem veiti viðtöku upplýsingum af því tagi sé bundinn þagnarskyldu með sama hætti." Í samtali við fréttamann fullyrti Matthías Johannessen að hvorki hann, né Styrmir Gunnarsson, hefðu séð eða lesið skjölin sem Sverrir dró upp úr pússi sínu. Þá sagðist hann aðspurður engin lög hafa brotið með því að ýja að persónulegum skuldum manna á opinni vefsíðu. Sverrir Hermannsson hefur ekki haft aðgengi að dagbók Matthíasar á vefsíðunni Matthías.is og fréttamaður las því færsluna fyrir hann í gegnum síma. Þetta er úr minni mínu horfið með öllu sagði Sverrir um þetta dagbókarbrot Matthíasar og einnig að það kæmi honum spánskt fyrir sjónir.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira