Salmonella á sambýli aldraðra á höfuðborgarsvæðinu 18. júní 2008 14:37
Fjórir einstaklingar tengdir sambýli aldraðra á höfuðborgarsvæðinu greindust með salmonellu í upphafi mánaðarins eftir því sem segir í nýjum Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Um var að ræða tvo starfsmenn og tvo heimilismenn. Sýkingar af völdum þessarar salmonellutegundar, sem nefni Salmonella poona eða farmsen, eru fremur sjaldgæfar og ekki hefur komið upp innlent smit af hennar völdum áður hérlendis. Hins vegar hefur hennar orðið vart í fleiri löndum Evrópu í apríl og maí, samanlagt milli 30-40 tilfelli. Ekki er með fullu vitað hvort þetta er sami stofn í öllum löndunum, en unnið er við stofnagreiningu til að bera stofnana saman. Svo virðist sem tilfellum fari nú fækkandi og sýkingin því á undanhaldi. Sóttvarnastofnanir þeirra landa þar sem sýkingin hefur greinst taka þátt í sameiginlegri vinnu við úrlausn faraldursins í samvinnu við Sóttvarnastofnun Evrópu sem kemur að samræmingu aðgerða. Sex kampýlóbaktersýkingar á Reyðarfirði í maí Þá kemur fram í Farsóttarfréttum að fyrstu fimm mánuði ársins bárust samtals 30 tilkynningar frá sýklafræðideild Landspítala til sóttvarnalæknis um kampýlóbaktersýkingar í mönnum. Þar af smituðust ellefu einstaklingar á Íslandi, átta á Spáni, tveir í Dóminíkanska lýðveldinu og á Ítalíu og einn í Marokkó og Alsír en upplýsingar um smitland vantar fyrir fimm einstaklinga. Flestir hinna smituðu, eða 16, voru búsettir á höfuðborgarsvæðinu en athygli vekur að sex einstaklingar með búsetu á Reyðarfirði greindust í maímánuði. Sýkingarnar á Reyðarfirði voru ekki tengdar ferðalögum heldur smituðust einstaklingarnir á staðnum. Upptök smitsins eru ókunn þrátt fyrir ítarlega rannsókn í samvinnu við heilbrigðiseftirlit Austurlands og lækna á Austurlandi en svo virðist sem faraldurinn á Reyðarfirði sé genginn yfir.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Sjá meira