Nýtt meistaranám við Háskólasetur Vestfjarða 31. ágúst 2008 11:58 Ísafjörður.
Menntamálaráðherra mun í dag formlega setja nýja námsleið á meistarastigi við Háskólasetur Vestfjarða. Um tímamót er að ræða því þetta er í fyrsta sinn sem staðbundið háskólanám er alfarið er kennt á Vestfjörðum. „Með setningu meistaranámsins í haf- og strandsvæðastjórnun stígur Háskólasetur Vestfjarða stórt skref í átt að þeim markmiðum sem sett voru fram í framtíðarsýn setursins í október á síðasta ári. Þau markmið fela meðal annars í sér að Háskólasetrið bjóði upp á hágæða alþjóðlegar námsleiðir á meistarastigi á fjölbreyttum sviðum sem öll tengjast málefnum hafs og strandsvæða", segir í tilkynningu. Meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er þverfaglegt, alþjóðlegt nám á sviði umhverfis- og auðlindastjórnun með áherslu á haf- og strandsvæði, en sérhæft nám sem snýr að þessum mikilvægu svæðum hefur ekki verið í boði á Íslandi fyrr. Námið er sett á fót í samvinnu við Háskólann á Akureyri sem hefur umsjón með innritun og útskrift nemenda jafnframt því að vera fræðilegur bakhjarl námsins. Málþing um sjálfbæra nýtingu strandsvæða Setningarathöfnin fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði kl. 16, en í tengslum við hana verður einnig blásið til málþings um sjálfbæra nýtingu íslenskra strandsvæða kl. 13 sem Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun setja. Málþinginu verður svo framhaldið mánudaginn 1. september og stendur frá kl. 8.30-12.30. Á málþinginu munu innlendir og erlendir kennarar námsleiðarinnar, ásamt fleiri sérfræðingum, varpa ljósi á viðfangsefni haf- og strandsvæðastjórnunar. Meðal efnis á málþinginu eru rannsóknir á náttúru og nýtingu strandsvæða, skipulag á strandsvæðum og stjórnun þeirra. Bæjarins besta greindi frá.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira