Milljóna lúxusbílar verða eldi að bráð 1. nóvember 2008 07:00 Stóri bruninn. Stóri bílabruninn í Vogum á Vatnsleysuströnd í fyrra hleypti tölunni á bílbrunatjónum upp um átta stykki á því ári hjá viðkomandi tryggingafélagi sem var Sjóvá Almennar. Þar var um íkveikju að ræða.
Bílar sem hafa eyðilagst í eldi á undanförnum mánuðum eru nýrri og mun dýrari en verið hefur í sambærilegum málum á síðustu árum. Allt að níu milljóna króna lúxusbílar hafa orðið eldi að bráð. Þá er uppi grunur um sviðsetta árekstra og eru slík mál til rannsóknar hjá lögreglu. Þetta kom fram í viðtölum Fréttablaðsins við yfirmenn tjónadeilda tryggingafélaganna Sjóvár Almennra, VÍS og Tryggingamiðstöðvarinnar. Að undanförnu hefur borið á að kviknað hafi í bílum þar sem þeir hafa staðið í bílastæði. Síðast í fyrrinótt brann nýlega innflutturMercedes Benz til kaldra kola þar sem hann var í stæði í Reykjavík. „Það sem einkennir þetta ár er að eðli bílbrunanna er öðru vísi,“ segir Jóhann Jóhannsson, deildarstjóri tjónadeildar VÍS. „Það gerist alltaf öðru hvoru að það kviknar í ökutækjum sem eru á ferð. Stundum er það af eðlilegum orsökum. En það er almennt talið óeðlilegt þegar kviknar í bílum sem standa í bílastæði. Það sem er einnig einkennandi fyrir þróunina á þessu ári er að það eru miklu dýrari bílar sem brenna núna. Í einhverjum tilvikum erum við að tala um hreina lúxusbíla, upp á allt að átta til níu milljónir króna. Fjöldi þessara tjóna hefur aukist milli ára og við erum einnig að tala um breytt munstur í þessum bílabrunum, sem við sáum ekki fyrir stuttu síðan. Bótagreiðslur eru töluvert hærri heldur en verið hefur.“ Jóhann segir að heildarfjöldi brunatjónanna á þessu ári sé kominn á þriðja tuginn hjá VÍS. „Þessi mál eru að sjálfsögðu allt of mörg,“ segir Róbert Bjarnason, forstöðumaður ökutækjatjóna hjá Sjóvá Almennum. „Hátt hlutfall mála þar sem orsakir eru ókunnar gefur til kynna að hugsanlega megi rannsaka þau mál betur hvað eldsupptök varðar. Vissulega eru í þeim flokki mál þar sem grunur leikur á íkveikju, en rannsókn lögreglu hefur þá ekki leitt það í ljós með óyggjandi hætti að svo sé. Sönnunarstaða í þessum málum er oftast mjög erfið. Ef grunur leikur á tryggingasvikum þá er málum vísað til frekari rannsóknar hjá lögreglu og þeim fylgt eftir af fullum þunga af okkar hálfu.“
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira