Vaxandi verðbólga bitnar illa á öryrkjum 5. september 2008 08:56 Halldór Sævar Guðbergsson er formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir þungum áhyggjum sínum yfir bágri fjárhagsstöðu fjölda öryrkja og sjúklinga vegna sívaxandi verðbólgu og hækkandi verðlags á nauðsynjavörum. Í ályktun frá bandalaginu segir að vaxandi hópi öryrkja reynist illmögulegt að láta enda ná saman vegna þessa. Þar segir enn fremur að treyst sé á að í fjárlögum næsta árs verði að finna umtalsvert auknar fjárhæðir til handa þeim sem verst standa í íslensku samfélagi. Bendir Öryrkjabandalagið á að á meðan lágmarkslaun hækkuðu um 18 þúsund krónur í nýgerðum kjarasamningum hækkaði lífeyrir almannatrygginga einungis um 7 prósent, eða sem nemur níu þúsund krónum ef einstaklingur hefur fulla greiðslu úr öllum fjórum bótaflokkum almannatrygginga, en lítill hluti öryrkja hefur slíkt. Þá er minnt á að Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra hafi boðað framfærsluviðmið sem átti að koma 1. júlí síðastliðinn en það hafi ekki enn litið dagsins ljós. „Þær umbætur sem gerðar hafa verið á almannatryggingakerfinu á árinu eins og afnám tekjutengingar við maka, 100.000,- króna frítekjumark á mánuði á launatekjur, og 25.000,- króna frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur hefur komið ákveðnum hópi til góða, en það hefur ekki nýst öllum öryrkjum," segir í ályktun ÖBÍ.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira