Lokaspretturinn í Baugsmálinu hafinn 14. maí 2008 19:06
Lokasprettur Baugsmálsins hófst í Hæstarétti í morgun, en þangað var áfrýjað dómum sem Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger hlutu í héraðsdómi fyrir ári. Málflutningur í Baugsmálinu stóð í Hæstarétti í allan dag en málið sjálft á sér hátt í þriggja ára sögu í dómskerfinu. Upphaflega var ákæran í 40 liðum, fyrir stórfelld brot og kom málið til kasta Héraðsdóms Reykjavíkur í ágúst 2005. Ákærunni í heild var vísað frá. Það var kært til Hæstaréttar, sem lagði fyrir héraðsdóm að fjalla um 8 liði, sem sýknaði í þeim öllum. Sex ákæruliðum var áfrýjað, en Hæstiréttur staðfesti sýknudóminn í janúar á síðasta ári. Þar með var upphaflega málið komið á endastöð. Þar með var ekki öll sagan sögð. Settur saksóknari endurákærði, núna í 19 liðum. Veigamesta liðnum, sem laut að meintum svikum vegna kaupa á 10-11 verslunarkeðjunni, var vísað frá og voru þá eftir 18 og tók héraðsdómur þá fyrir í janúar á síðasta ári. Skilorðsbundnir dómar féllu í maí, þar sem Tryggvi var dæmdur í 9 mánaða fangelsi og Jón Ásgeir í 3 mánaða fangelsi. Alls var sakfellt í fjórum ákæruliðum en fjórtán ákæruliðum var ýmist vísað frá eða sýknað í þeim en máli Jóni Geralds var vísað frá. Frávísun tíu ákæruliða var kærð til Hæstaréttar, sem sendi þá í hérað aftur. Dómur féll í júní í fyrra, þar sem Tryggvi fékk 3 mánuði til viðbótar, en Jón Ásgeir sýknaður. Jón Gerald fékk 3 mánaða skilorðsbundinn dóm. Málinu var svo öllu vísað til Hæstaréttar þar sem málflutningi lýkur á morgun. Stefnt er að því að Hæstiréttur felli dóm innan þriggja vikna frá þeim tíma.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira