Innlent

Bifreið brann í Heiðmörk

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út klukkan hálfeitt í nótt vegna bifreiðar sem stóð í ljósum logum í Heiðmörk, rétt við Vífilsstaðaveg. Ekki varð vart við mannaferðir í grenndinni og lauk slökkvistarfi upp úr klukkan eitt. Ekki er unnt að segja neitt um tildrög brunans á þessu stigi málsins en lögregla fer með rannsókn málsins.

Þá kviknaði eldur í steypuskála Norðuráls á Grundartanga um klukkan níu í gærkvöldi. Náðu starfsmenn að ráða niðurlögum hans áður en slökkvilið kom á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×