Aðildarviðræður gætu tekið innan við hálft ár 6. nóvember 2008 15:05 Eiríkur Tómasson.
Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, telur að aðildarviðræður við Evrópusambandið gætu tekið nokkra mánuði. Þetta kom fram á hádegisfundi Framsóknarflokksins um þjóðaratkvæðagreiðslur og stjórnarskrána en þar var Eiríkur með framsögu. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði vaxandi þrýsting í samfélaginu vera á Evópusambandsaðild. Hún vitnaði til orða Diana Wallis sem situr á Evrópuþingu fyrir hönd Bretlands sem hefur sagt að aðildarviðræður Íslands gætu gengið afar hratt fyrir sig. Í framhaldinu spurði hún Eirík af því hversu langan tíma hann teldi að ferlið gæti tekið. ,,Það ætti ekki að taka langan tíma. Í fyrsta lagi þarf ekki neina stjórnarskrárbreytingu til að fara í aðildarviðræður," sagði Eiríkur sem taldi jafnframt að umsóknarferlið ætti að nást auðveldlega innan sex mánuða. Áður en Ísland gerðist aðili að Evópusamabandinu þarf að breyta stjórnarskránni og slíka tilögu er hægt að leggja til samhliða aðildarviðræðum en að því loknu þarf að rjúfa þing og efna til kosninga. Jafnframt því verði að setja lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Eiríkur sagði ekkert því til fyrirstöðu að fram fari vetrarkosningar. Það hafi seinast verið gert árið 1979 og þær kosningar hafi gengið vel. Ákvæði um framsal á valdi Um framsal á ríkisvaldi sagði Eiríkur að víðast hver hafi þjóðþing farið þá að leið að hafa almennt ákvæði í stjórnarskrám sínum að hægt sé að framselja vald til stofnana á borð við Evrópusambandið í stað þess að hafa sér ákvæði varðandi eina tiltekna stofnun. Eiríkur nefndi sem dæmi að þrír fjórðu þingmanna norska Stórþingsins geta framselt vald til alþjóðlegra stofnana. Ekki sé nauðsynlegt að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla en aftur á móti hafi Norðmenn tvívegis farið þá leið í tengslum við aðild að Evrópusambandinu. Í dönsku stjórnarskránni er svipað ákvæði. Ríkisstjórnarflokkarnir ósammála Eiríkur sagði lítið hafa áunnist í að breyta stjórnarskránni til nútímalegri horfs. Í umræðum á fundinum tók Jón Kristjánsson, fyrrum ráðherra og formaður stjórnarskrárnefndar, til máls. Hann sagði nefndina ekki hafa komið sér saman um neitt á seinasta kjörtímabili og að vinna hennar hafi strandað á núverandi stjórnarflokkum sem hafi ekki getið komið sér saman um atriði varðandi embætti forseta Íslands.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Sjá meira