Lögguhrotti fær hálfs árs fangelsisdóm 3. september 2008 11:29
Ágúst Fylkisson var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundna, fyrir alvarlega líkamsárás á lögregluþjón eftir mótmæli vörubílstjóra í vor. Samkvæmt ákæru réðst Ágúst á lögregluþjóninn á Kirkjusandi í apríl þar sem verið var að afhenda vörubíla sem haldlagðir höfðu verið í mótmælunum. Sló hann lögreglumanninn í andlitið og tók hann hálstaki þannig að lögregluþjónninn náði vart andanum. Sleppti hann ekki takinu fyrr en lögreglumenn komu félaga sínum til aðstoðar. Við þetta fékk lögreglumaðurinn sem ráðist var á blóðnasir, mar og bólgur í andliti og áverka á hálsi. Málið á hendur Ágústi var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og játaði hann á sig verknaðinn. Dómur var svo kveðinn upp í kjölfarið. Auk brots gegn valdstjórninni var Ágúst sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa í fórum sínum lögreglukylfu úr tré en í samtali við fjölmiðla eftir málið sagðist Ágúst hafa ráðist á lögreglumanninn vegna þess að lögregla tók af honum kylfuna. Ágúst baðst skömmu eftir atvikið afsökunar á framferði sínu, meðal annars í samtali við Vísi. Dómurinn er í samræmi við það sem saksóknari fór fram á en Ágúst hefur nú fjórar vikur til þess að ákveða hvort hann áfrýjar málinu til Hæstaréttar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira