Innlent

"Skítt með kerfið" brot á siðareglum pönkara?

Pétur Jóhann Sigfússon og Óttarr Proppé gefa skít í kerfið.
Pétur Jóhann Sigfússon og Óttarr Proppé gefa skít í kerfið.

Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að auglýsingaherferð Vodafone, "Skítt með kerfið", hafi ekki brotið siðareglur auglýsingastofa. Ónefndur aðili kærði herferðina og vildi meina að textinn væri brot á siðareglum því hann væri "óguðlegur" og "ósiðlegur" auk þess sem hann „bryti í bága við almennt siðferði og væri óæskilegur." Það er hins vegar spurning hvort siðareglur pönkara hafi ekki verið brotnar.

Í úrskurði siðanefndar SÍA segir að auglýsingin brjóti ekki í bága við þessar greinar þar sem ekki er verið að hallmæla fyrirtæki eða samkeppnisvöru, né verið að misnota trúgirni barna eða skaða þau geðrænt eða siðferðislega," eins og segir í tilkynningu frá Vodafone. „Nefndin telur að notkun samskonar blótsyrða og þess sem fram kemur í umræddri auglýsingu sé orðin það almenn, bæði í daglegu tali fólks og í fjölmiðlum, að birting þess í auglýsingunni brjóti ekki í bága við almenna velsæmiskennd."

Í tilkynningunni frá Vodafone er því hins vegar velt upp hvort auglýsingin hafi ekki verið brot á annarskonar siðareglum, nefnilega þeim sem pönkarar aðhyllast. Óttarr Proppé, forssöngvari í pönkhljómsveitinni Rass, fer nefnilega mikinn í auglýsingunni og öskrar "Skítt með kerfið" af miklum móð.

Pönkarar hafa hingað til ekki verið mikið fyrir að þjóna stórfyrirtækjum og því munu umræður hafa sprottið upp á meðal þeirra sem telja sig til pönkara hvort Óttarr og félagar hafi ekki farið út fyrir ákveðin velsæmismörk og svikið málstaðinn. „Ekki er starfandi siðanefnd íslenska pönkara svo vitað sé og hefur herferðin því ekki verið tekin fyrir á þeim vettvangi," segir í tilkynningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×