Hvað hefði Hillary getað gert við peningana? 9. júní 2008 11:54 Hillary Clinton reið ekki feitum hesti frá baráttunni, þrátt fyrir að hafa eytt svimandi fjárhæðum.
Hillary Clinton eyddi svimandi háum fjárhæðum í tilraun sinni til að tryggja sér tilnefningu demókrata til forsetaframboðs í Bandaríkjunum. Dagblaðið New York Daily News hefur tekið saman kostnaðinn og gefur henni nokkur dæmi um hvað hún hefði getað gert við peningana annað en að henda þeim á glæ í kosningabaráttu sem tapaðist. Clinton eyddi 212 milljónum bandaríkjadala, eða um 16 milljörðum íslenskra króna, í baráttunni. Hún uppskar átján milljón atkvæði og skilaði það henni 1.926 kjörmönnum. Það þýðir að Hillary eyddi tæpum 110 þúsund bandaríkjadölum á hvern kjörmann, eða um 8.3 milljónum króna. Blaðið segir að þetta þýði að Hillary, sem í byrjun baráttunnar var talin nær örugg um sigur eyddi meira en nokkur annar frambjóðandi hefur gert í sögunni án þess að tryggja sér sigur. Fyrir peningana hefði Hillary meðal annars getað boðið 76 þúsund fjögurra manna fjölskyldum í Disneyland, gefið tæplega tíu þúsund Toyota Prius bifreiðar eða 70,7 milljón sparperur. Hún hefði einnig getað keypt bóluefni gegn flensu fyrir 10,6 milljónir manna, eða gefið öllum nemendum í gamla háskólanum sínum, Porsche 911 Carrera, en þeir eru 2300. Að endingu reiknar blaðið út að Clinton hefði getað, í stað þess að eyða peningunum í baráttuna, boðið hverjum einasta íbúa New York ríkis í bíó og mælir blaðamaðurinn með myndinni "The Fall".
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent