Björgólfur segir Íslandi betur borgið utan ESB 30. október 2008 15:21 MYND/GVA
Björgólfur Jóhannsson, fráfarandi formaður LÍÚ, er algjörlega andvígur þeim sjónarmiðum að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Í kveðjuræðu sinni á aðafundi sambandsins sagðist Björgólfur telja að þegar íslenskur almenningur kynnti sér betur hvernig að þessum málum er staðið yrði honum ljóst að að hagsmunir Íslands væru best tryggðir utan ESB. Með aðild myndu Íslendingar afsala sér yfirráðum yfir fiskimiðunum og þá myndi ESB stjórna veiði hér við land. „Á sama tíma og við höfum staðið vörð um okkar helstu fiskistofna og gert þá kröfu að fiskveiðarnar yrðu reknar á heilbrigðum, rekstarlegum forsendum hefur ESB rekið þveröfuga stefnu. Fiskimið aðildarlandanna hafa verið ofnýtt, fiskiskipastóllinn er allt of stór og hundruðum milljarða hefur verið varið til þess að halda atvinnuveginum gangandi," sagði Björgólfur. Þá talaði Björgólfur um einhliða áróður ESB-sinna og sagði það áhyggjuefni. „Þegar starfsmenn þriggja háskóla vinna eins og áróðursvélar fyrir aðild að ESB er ekki við því að búast að við almenningi blasi óvilhöll mynd af þeim grundvallarhagsmunamálum sem þjóðin stendur frammi fyrir," sagði Björgólfur. Sagði Björgólfur ekki við krónuna að sakast hvernig komið væri fyrir þjóðinni. „Ástæðuna fyrir tíðum sveiflum krónunnar undanfarin ár er að finna í þeirri stjórn - eða öllu heldur þeirri óstjórn peninga- og efnahagsmála - sem hér hefur viðgengist undanfarin ár. Þegar óvarlega er farið við stjórn efnahagsmála er viðbúið að það endurspeglist í gengi krónunnar. Það er misskilningur að halda því fram að við hefðum getað komist hjá þeim vandræðum sem við erum stödd í dag með því einu að skipta um gjaldmiðil - því miður," sagði Björgólfur enn fremur.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira