Innlent

Hugsanlega kveikt í bílum

Elds varð vart í mannlausum bíl sem stóið fyrir utan fyrirtæki við Krókháls í Reykjavík um klukkan hálfþrjú í nótt. Þegar slökkviliðið kom á staðinn skíðlogaði í bílnum og var lakk farið að sviðna á nálægum bíl.

Bíllinn, sem eldurinn kviknaði í, er talinn ónýtur. Eldsupptök eru ókunn en í fyrrinótt skemmdist annar bíll í eldi á sama stað og rannsakar lögreglan nú hvort um íkveikjur hafi verið að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×