Innlent

Þrír á slysadeild eftir bruna í Rjúpufelli

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var sent að fjölbýlishúsi við Rjúpufell í Reykjavík um klukkan hálftólf í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um eld í íbúð þar.

Þegar liðið kom á vettvang höfðu flestir íbúar stigagangsins forðað sér út, en eldurinn var staðbundinn í einni íbúð. Hann var slökktur á skammri stundu en reykur hafði borist fram á stigaganginn. þrír voru fluttir á slysadeild, vegna gruns um reykeitrun. Eldsupptök eru ókunn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×