Arnbjörg er voða vond segir Mogginn Óli Tynes skrifar 2. febrúar 2008 18:33
Morgunblaðið skýrir frá því í dag að Arnbjörg Sveinsdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins stjórni með svo harðri hendi að þingmenn séu að verða brjálaðir. Ólgan sé svo mikil að hún sé farin að berast útfyrir þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokksins. Arnbjörg er sögð vilja ráða því hvenær þingmenn flokksins taka til máls á Alþingi og líka hverjir það eru sem fá að tala. Vísir gerði vísindalega könnun á því hvernig þessu væri háttað í öðrum flokkum. Katrín Jakobsdóttir, vara þingflokksformaður Vinstri grænna, veltist um af hlátri þegar hún var spurð. "Það vita nú allir að það er vonlaust að fá okkur Vinstri græn til þess að hætta að tala. Enda hefur það ekkert verið reynt," sagði Katrín. Jón Magnússon, vara-þingflokksformaður Frjálslyndaflokksins hló einnig. "Ég er nú svo heppinn að vera í aðeins fjögurra manna þingflokki og þar eru engar skorður lagðar á hvenær menn tala. Miklu frekar leggja menn á ráðin um hið gagnstæða. En flokksræði í Sjálfstæðisflokknum kemur mér ekki á óvart." "Æ,æ, ég vil ekki tala illa um Sjálfstæðisflokkinn," sagði Össur Skarphéðinsson, samfylkingarráðherra í ríkisstjórninni. "En ég minnist þess aldrei að hafa heyrt um að mönnum væri bannað að taka til máls á þingi. Menn eru frekar hvattir til þess að tala en þegja." Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins skellti uppúr. "Vandinn er líklega sá að það eru alltof margir í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Hjá okkur eru allir fjrálsir að því að tala þegar þeir vilja. Við utandagskrárumræður er stundum aðeins hægt að koma tveimur að og þá er það bara samkomulagsatriði. Þeir tala þá sem best eru að sér í viðkomandi máli, vegna nefndasetu eða annars."
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Sjá meira