Gripinn við að kasta af sér þvagi utan í hús á Selfossi 23. júní 2008 15:30 MYND/E.Ól
Þau eru af ýmsu tagi málin sem lögreglan á Selfossi glímir við á degi hverjum. Þannig var ungur maður staðinn að því að kasta af sér þvagi utan í hús á Eyrarvegi á Selfossi í liðinni viku en slíkt stríðir gegn lögreglusamþykkt Árborgar. Eftir því sem segir í dagbók lögreglunnar neitaði maðurinn sök en hann verður engu að síður ákærður fyrir brot á lögreglusamþykktinni. Þá handtók lögreglan mann fyrir utan skemmtistað í bænum þar sem hann var að hoppa uppi á bifreið og enn fremur voru tveir menn handteknir á öðrum skemmtistað í bænum fyrir að veitast að lögreglumönnum sem þar voru óeinkennisklæddir við eftirlitsstörf. Lögreglumennirnir höfðu haft afskipti af öðrum manninum þar sem hann var að ónáða konur inni á kvennasnyrtingu og sagt honum að þeir væru á vegum lögreglunnar. Skömmu síðar á öðrum stað í húsinu hitti maðurinn á lögreglumennina og ógnaði þeim með ýmsum tilburðum og öskrum. Félagi mannsins gekk svo í lið með honum. Þeir voru hins vegar yfirbugaðir og fluttir í fangageymslu en látnir lausir að yfirheyrslum loknum. Þeir verða ákærðir fyrir brot á áfengis- og lögreglulögum.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira