Innlent

Búast við mikilli röskun á flugi

Flugstoðir hafa samið viðbúnaðaráætlun vegna yfirvofandi verkfalls flugumferðarstjóra næsta mánuðinn þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að allt flug í gengum flugstjórnarsvæði Íslands leggist af á meðan á aðgerðum stendur.

Flugumferðarstjórar kynntu í síðustu viku aðgerðir sínar sem miða að því að knýja á um nýjan kjarasamning. Aðgerðirnar snúast um 20 vinnustöðvanir á tímabilinu 27. júní til 20. júli og leggja þeir niður vinnu í fjórar klukkustundir í senn.

Flugstoðir ohf., sem sjá um íslenska flugstjórnarkerfið, hafa brugðist við þessu og samkvæmt viðbúnaðaráætlun er gert ráð fyrir að þjónusta við yfirflug í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið sé óskert fyrstu tvo

verkfallsdagana á milli kl. 7 og 11 þótt flug til landsins leggist af og flug frá landinu verði takmarkað við tvær flugvélar frá Keflavíkurflugvelli á hverri klukkustund.

,,Í framhaldinu má búast við að þjónusta við alþjóðaflugið verði fyrir verulegum truflunum. Í viðbúnaðaráætlun Flugstoða er gert ráð fyrir að allt flug í gegnum flugstjórnarsvæði Íslands leggist af meðan á verkfallsaðgerðum stendur eftir fyrstu tvo verkfallsdagana," segir í tilkynningu Flugstoða.

Þannig fellur allt innanlandsflug niður á verkfallstímanum, sem stendur í

fjórar klukkustundir í senn, verkfallsdagana tuttugu en verkföllin

hefjast ýmist kl. 7, 8 eða 9. Full þjónusta verður þó við sjúkra- og neyðarflug á meðan á verkfallsaðgerðum stendur.

Þá segir í tilkynningunni að röskun á millilandaflugi muni magnast þegar verkföllin skella á dag eftir dag. ,,Á verkfallstímanum munu engar flugvélar á leið til landsins lenda hérlendis. Ekkert innanlandsflug verður á verkfallstímanum, sem hefur í för með sér að a.m.k. fjögurra klukkustunda seinkun flugi. Búast má við að þessar seinkanir hafi veruleg óþægindi og kostnað í för með sér fyrir ferðamenn auk þess sem flugfélögin verða fyrir miklum aukakostnaði," segja forsvarsmenn Flugstoða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×