Innlent

Máttu ekki leyfa unglingum að selja tóbak

SB skrifar
Samkaup fékk ekki undanþágu fyrir því að leyfa unglingum að selja tóbak.
Samkaup fékk ekki undanþágu fyrir því að leyfa unglingum að selja tóbak.

Verslunin Samkaup í Búðarkór í Kópavogi fékk ekki undanþágu til að leyfa unglingum undir átján ára aldri að selja tóbak. Úrskurðarnefnd um hollustu og mengunarhætti staðfesti synjunina.

Samkaup sótti um undanþáguna þar sem ekkert gekk að ráða starfsfólk eldra en átján ára til starfa í versluninni. Hægt er að sækja um undanþágu frá tóbaksvarnarlögum ef sérstakar aðstæður knýja á um það að unglingar undir átján ára aldri þurfi að selja tóbak.

Í umsókn Samkaupa um undanþáguna lögðu þeir fram tvær atvinnuauglýsingar þar sem auglýst var eftir starfsfólki eldra en átján ára. Engin svör bárust við auglýsingunum.

Auk þess hafði verslunin undir höndum staðfestingu frá Hugrúnu Jóhannesdóttur, forstöðumanni Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu þess efnis að erfitt væri að ráða fullorðið fólk til vinnu.

Þessar ástæður þóttu þó ekki nægilega veigamiklar til þess að veita versluninni undanþágu frá tóbaksvarnarlögunum. Ástæðan fyrir því að ungmenni undir átján ára aldri mega ekki selja sígarettur er til þess að koma í veg fyrir að þau selji jafnöldrum sínum tóbak en einnig til að "...forða ungmennum frá því að vera settir í að selja heilsuspillandi og ávanabindandi efni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×