„Starfið verður auglýst í fyllingu tímans“ Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 9. maí 2008 13:17
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um það hafi verið rætt innan meirihlutans að fá sterkan aðila að málefnum miðborgarinnar. Gríðarlegir hagsmunir séu í húfi og óvissutímabil framundan. Hann segist þeirrar skoðunnar að auglýsa eigi öll störf innan borgarkerfisins en að gild rök geti verið fyrir því að gera á því undantekningu eins og gert var þegar Jakob Frímann Magnússon var ráðinn framkvæmdastjóri miðborgar. Hann segist gera ráð fyrir að starfið verði auglýst í fyllingu tímans. „Það var um það rætt innan meirihlutans að nauðsynlegt væri að fá öflugan einstakling í þessi mál," segir Júlíus Vífill í samtali við Vísi. „Þarna eru gríðarlegir hagsmunir í húfi og tímabil mikilla breytinga í miðbænum er framundan. Það er því mikilvægt fyrir borgaryfirvöld að hafa augu og eyru í miðborginni. Aðspurður hvort eðlilegt hefði verið að auglýsa starfið segir Júlíus: „Þetta mátti gera þetta með tvennum hætti, að auglýsa starfið eða fara þá leið sem borgarstjóri kaus og ráða í starfið tímabundið. Það hefði eflaust verið meiri friður um ráðninguna ef hún hefði verið auglýst en borgarstjóri ákvað að fara aðra leið." Að mati Júlíusar hefur Ólafur fært ágætis rök fyrir þeirri leið sem hann fór í málinu. „Sem meginreglu tek ég undir að æskilegt sé að öll störf borgarinnar séu auglýst, en á því geta verið undantekningar og fyrir því er hægt að færa rök. En ef þetta verkefni gefur góða raun geri ég ráð fyrir að því verði haldið áfram og þá verður starfið auglýst í fyllingu tímans. Nafn Jakobs Frímanns kom upp í umræðunni innan meirihlutans eftir að ákveðið var að koma stöðunni á fót. „Ég get vitnað um það að á þeim fundum sem ég kom að vegna málefna miðborgarinnar var rætt um að setja þyrfti framkvæmdastjóra en þá var ekki minnst á nein nöfn í því sambandi. Nafn Jakobs kom því upp á seinni stigum málsins en þegar nafn hans bar á góma var almennt tekið vel í það að fá hann til verksins. Það var svo borgarstjóri sem sá um ráðninguna enda á hans könnu að gera það," segir Júlíus Vífill Ingvarsson.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira